í dag er 18. maí 2012 og hér eru nýjustu fréttirnar af maus.
 
18. desember 2003.
maus á næstu dögum.
eftir hefbundið barneignarfrí erum við komir á rokk og ról á ný.
    föstudagur 19.des : heiniken hátíð á grand rokk!
    við spilum ásamt dáðadrengjum, lokbrá og noise. mér skilst að við verðum búnir að spila fyrir eða um miðnætti. veit því miður ekki meira eins og er.

    laugardagur 20.des : smekkleysuhátíð á gauknum!
    við spilum mínus, dr. gunna, kimono, einar erni/ghostigital, steintryggi og dópskuld. húsið opnar kl.20:00 og díllinn er þannig að það kostar 1500 kall inn og það fylgir með geisladiskur að eigin vali úr útgáfuflóði smekkleysu!!! tónleikarnir verða búnir um miðnætti.

    laugardagur 27.des : laugardagskvöld með gísla marteini á rúv!
    þessu má ekki nokkur maður missa af. við komum fram með frábærum leynigesti. þetta kemur til með að halda mönnum í jólaskapi fram í febrúar.
  
16. desember 2003.
ný sending af maus bolum í dogma!
við vorum að fara með nýja sendingu til dogma í dag þar sem margar stærðir voru orðnar uppseldar.

  
8. desember 2003.
glænýir maus bolir koma í dogma í dag!
við vorum að klára að prenta tvær nýjar tegundir af maus bolum í öllum helstu litum og stærðum. annar bolurinn er tileinkaður myndbandinu við "my favourite excuse" en hinn bolurinn er öllu klassískari eða með maus stöfum og skjaldamerkinu okkar.

  
8. desember 2003.
maus með 2 tilnefningar á Íslensku tónlistarverðlaununum, m.a. í flokki plötu ársins.
við erum tilnefndir í tveimur flokkum á íslensku tónlistarverðlaununum í ár. musick er tilnefnd sem plata ársins og myndbandið við "my favourite excuse" er tilnefnt sem myndband ársins. ragnar hansson á heiðurinn af því myndbandi og geta gestir maus.is séð myndbandið hér:
 stærri [quicktime, 35mb ]  minni [quicktime, 9mb ]     windows media [ 13mb ]

  
17. nóvember 2003.
drengur er fæddur!!
það er okkur sönn ánægja að kynna þriðja mausbarnið til leiks. daníel og kolbrún eignuðust sitt annað barn núna á föstudaginn. frumburður þeirra er stúlka en nú var það strákur. öllum heilsast vel!

  
17. nóvember 2003.
10 ára afmælistónleikar x-ins 977 - maus auglýstir - en spila ekki ;/

athugið!! ...vegna ánægjulegrar fréttar hér að ofan komum við ekki til með að taka þátt í fyrirhugaðri afmælishátíð x-ins. við sendum afmælisbarninu okkar bestu kveðjur og óskum tónleikagestum góðrar skemmtunar.

hér er fréttatilkynning sem send var á fjölmiðla:
    Eins og áður hefur komið fram hefur útvarpstöðin X-ið 977 verið að fagna 10 ára starfsafmæli sínu á þessu ári með margvíslegum uppákomum. Síðastliðið sumar komu hingað til lands nokkrar erlendar rokksveitir í nafni afmælishátíðarinnar og nú er svo kominn tími til að setja punktinn yfir i-ið með al-íslenskum risa rokktónleikum á Nasa. Þriðjudaginn 18. nóvember ætlar X-ið 977, ásamt nokkrum af þekktustu rokksveitum íslands, að bjóða hlustendum sínum á tónleika sem enginn á eftir að gleyma. Brain Police, Botnleðja, Maus, Mínus, Ensími, 200.000 Naglbítar og Vínyll ætla allar að samgleðjast stöðinni og troða upp með látum.

    Húsið mun opna klukkan 20.00 og mun dagskráinn hefjast stuttu eftir það svo allir fái sitt pláss.

    Hlustendur geta fylgst með á X-inu 977 og unnið sér inn miða á herlegheitin.

    ATH: ekki er hægt að kaupa sér inná tónleikana þar sem þetta eru einungis boðsmiðar í gangi sem X-ið 977 og aðildarfyrirtæki mun gefa.
31. október 2003.
maus grandrokk föstudaginn 7. nóvember!!
við höfum bókað okkur á grand rokk föstudagskvöldið 7. nóvember svo takið daginn frá. við komum til með að bæta inn frekari upplýsingum hér á vefinn þegar þær berast.

  
30. október 2003.
smeeee 2003 !! - útgáfuhátíð smekkleysu á nasa í kvöld!!
í kvöld spilum við á útgáfuhátíð smekkleysu á skemmtistaðnum nasa við austurvöll. flestir þeir listamenn sem eru að gefa út hjá fyrirtækinu þessa dagana stíga á stokk eins og fram hefur komið (sjá frétt hér að neðan). þetta verða án efa frábærir tónleikar sem enginn ætti að láta framjá sér fara.

  
29. október 2003.
maus í "ísland í dag" í kvöld (íííí...!!)
miðvikudagskvöldið 29. október spilum við eitt lag í sjónvarpsþættinum ísland í dag á stöð 2. eins og flestir vita er þátturinn er sýndur fyrir og eftir kvöldfréttirnar þannig að það er eins gott fyrir alla að fylgjast vel með. við ætlum að spila lagið "my favourite excuse" enda er lagið í spilun um þessar mundir auk þess við vorum að frumsýna nýtt myndband í vikunni.

  
27. október 2003.
rokkað norðan heiða í síðustu viku
við fórum fínan rokktúr um norðurland undir lok síðustu viku. við spiluðum á fimmtudegi ásamt brain police í sal menntaskólans á akureyri fyrir rétt um 300 manns og var það bara ansi fínt. eftirpartýið kom líka sterkt inn! en föstudagskvöldinu eyddum við í rokkbænum húsavík og spiluðum þar á alveg frábærum tónleikum fyrir rúmlega 200 rokkþyrsta húsvíkinga ásamt dáðadrengjum, betlehem og amos. ekki veit ég hvað málið er með húsvíkinga, það hlýtur einhver að hella hreinu rokki út í kranavatnið hjá þeim því kynslóð eftir kynslóð virðist rokkið alltaf málið þarna. annars tala myndirnar frá tónleikunum sínu máli (takk fyrir það, skarpur.is) og líka þessar myndir (takk fyrir það, betlehem.tk).... ...meira helvíti, meira pönk!

  
27. október 2003.
smeeeeeee 2003 !! - útgáfuhátíð smekkleysu á nasa næsta fimmtudag
fimmtudagskvöldið 30. október verður haldin heljarinnar útgáfuhátíð á skemmtistaðnum nasa við austurvöll. útgáfufyrirtækið smekkleysa ætlar að gera upp útgáfuárið sitt og koma fram flestir þeir listamenn sem gefa út plötur hjá fyrirtækinu fyrir næstu jól. maus er að sjálfsögðu í þessum hópi og því munum við stíga á stokk og leika nokkur vel valin lög í tilefni hátíðarinnar. einnig koma fram mínus, dr. gunni, kimono og einar örn benediktsson sem ætlar að sýna vídeóverk.
miðverð er aðeins 1.000 kr fyrir allar þessar hljómsveitir og opnar húsið opnar kl. 21.00.

  
26. október 2003.
myndband við my favourite excuse í spilun í vikunni
í vikunni afhendum við helstu sjónvarpsstöðvum glænýtt myndband við lagið "my favourite excuse". vonandi fer það bara sem allra fyrst í spilun.

við erum mjög ánægðir með þetta myndband enda er höfundur þess snillingur að nafni ragnar hansson.

gestir maus.is geta glaðst þar sem þeir geta skoðað myndbandið hér að neðan:
 stærri [ 35mb ]     minni [ 9mb ]

  
20. október 2003.
maus með tvenna tónleika á norðurlandi í vikunni
þrátt fyrir lækkandi sól geta norðlendingar tekið gleði sína upp að nýju þar sem að við mausarar erum að spila á tvennum tónleikum norðan heiða undir lok vikunnar. við komum til með birta frekari upplýsingar um tónleikana hér á maus.is þegar þær berast, en eins og þetta lítur út núna þá er þetta svona:
    akureyri, fimmtudagskvöldið 23.október 2003
    maus og brain police spila í sal menntaskólans á akureyri. nemendafélög þriggja skóla standa að tónleikunum: menntaskólans á akureyri, verkmenntaskólans á akureyri og háskólans á akureyri.

    húsavík, föstudagskvöldið 24.október 2003
    maus, dáðadrengir, betlehem og amos spila í sal Borgarhólsskóla fyrir árgang ´90 og eldri. þeir sem standa að tónleikunum eru keldan, tún, nemendafélag framhaldskólans á húsavík og hljómsveitin betlehem. það kostar 1000 kr. inn fyrir skólafólk en 1500 kr. fyrir aðra. húsið opnar kl. 20.00 en tónleikarnir eiga að hefjast kl. 20:30. tónleikahaldarar vilja jafnframt að það komi fram að ölvun ógildir miðan.
  
14. október 2003.
maus á airwaves á föstudagskvöldið
við komum til með að taka þátt í tónlistarhátíðinni airwaves sem hefst núna á fimmtudaginn. við spilum á föstudagskvöldinu klukkan 21.15 á gauki á stöng og þið megið endilega láta sjá ykkur um það leiti. annars er dagskrá kvöldsins á gauknum eftirfarandi:
    FÖSTUDAGUR 17.OKTÓBER
    @ GAUKUR Á STÖNG:
    -------------------------------------------
      20:30   Daysleeper
      21:15   Maus
      22:00   Brain Police
      23:00   Prosaics
      00:00   Tv On The Radio
      01:00   Captain Comatose
      02:00   Audio Bullys
      04:00   Alfons X
    -------------------------------------------
  
8. október 2003.
maus bæði á bolungarvík og súðavík á föstudagskvöldið
við erum að spila á tveimur böllum fyrir vestan á föstudagskvöldið. annars vegar er um að ræða ball (tónleikar?) í grunnskólanum á bolungarvík og skilst mér að nemendur fleiri grunnskóla séu á svæðinu á íþróttamóti. hins vegar er um að ræða sjálft skrall menntaskólans á ísafirði en það eru nokkurskonar sveitaböll hjá nemendum skólans. hefð er fyrir því að skrallið sé aldrei haldið á ísafirði heldur er farið eitthvað út fyrir bæinn með langferðabifreiðum. jafnframt eru rokksveitir yfirleitt að spila á skrallinu í stað "hefbundinna" sveitaballabanda. mikil stemmning. mikið gaman. og að þessu sinni er skrallið haldið í gömlu samkomuhúsi á súðavík sem nýlega hefur verið gert upp.

maus spiluðu einmitt á skrallinu 1999, þá á bolungarvík, auk þess sem eggert og danni spiluðu með hljómsveitinni brim á skrallinu 1997 á flateyri. annars hefur maus fimm sinnum spilað á ísafirði eða nærsveitum:

 # dagsetning staður tilefni
71. 23. mars 1996  menntaskólinn á ísafirði maus tónleikar í menntaskólanum
79. 2. nóvember 1996  ísafjarðarbíó maus og stjörnukisi
120. 8. febrúar 1998  ísafjörður (frystihús) frystihúsarokk með maus,kolrössu og sigur rós
169. 8. október 1999  bolungarvík skrallið 1999
228. 6. júní 2003  kaffi ísafjörður maus á ísó 2003


8. október 2003.
myndir frá tónleikum okkar í norðurkjallara
einhver snillingurinn tók slatta af myndum á tónleikum okkar í norðurkjallara menntaskólans við hamrahlíð síðasta föstudag. með okkur spiluðu hljómsveitirnar norton og lokbrá og voru þær báðar bráðskemmtilegar eins og við mátti búast.
skoða myndirnar


4. október 2003.
"life in a fishbowl" myndbandið tilnefnt til edduverðlauna 2003
myndbandið við lagið "life in a fishbowl" hefur nú verið tilnefnt til edduverðlaunanna í ár í flokki bestu myndbanda ársins.
eins og áður hefur komið fram voru það börkur sigþórsson og björn thors sem eiga heiðurinn af myndbandinu.
skoða myndbandið (MPEG, 49.161 KB)

önnur myndbönd sem voru tilnefnd voru "mess it up" með quarashi í leikstjórn gauks úlfarssonar og "allt sem ég sé" með írafár í leikstjórn guðjóns jónssonar.

vefur edduverðlaunanna inniheldur allar upplýsingar um hátíðina í ár auk þess sem almenning verður boðið að taka þátt í kosningunni. sú kosning hefst mánudaginn 6. október kl. 10:00.

til gamans skelltum við hér inn nokkrum myndum frá tökum myndbandsins:


  
3. október 2003.
maus í norðurkjallara í kvöld.
við höfum spilað árlega í norðurkjallara mh síðan 1993, reyndar með undantekningum árin 2000 og 2001. þetta eru yfirleitt frábærir tónleikar enda er salurinn skemmtilega lítill.

sem fyrr spila með okkur vel valdar hljómsveitir. önnur heitir norton og er skipuð fjörugum drengjum úr mh en hin heitir lokbrá og er skipuð ekki síður fjörugum drengjum.

húsið opnar kl. 20:30 og viljum við benda mönnum á að mæta tímanlega því það eru ekki það margir sem komast þarna inn. miðaverð er 600 kr. fyrir félaga í NFMH en 800 kr. fyrir aðra.

en mikið andskoti höfum við spilað oft í skólanum:

 # dagsetning staður tilefni
6. 1. október 1993  norðurkjallari mh ham tónleikar
39. 11. nóvember 1994  mh - norðurkjallari maustónleikar í mh
60. 29. september 1995  mh, norðurkjallari hinu árlegu norðurkjallaratónleikar 1995
61. 12. október 1995  mh, hátíðarsalur minningartónleikar um fróða finnsson
68. 21. febrúar 1996  mh, matsalur sæluvikutónleikar
76. 13. september 1996  mh-norðurkjallari hinir árlegu maus tónleikar mh 1996
81. 21. febrúar 1997  mh-norðurkjallari tún-tónleikarnir
100. 26. september 1997  norðurkjallari mh hinir árlegu maus í mh tónleikar
123. 25. febrúar 1998  menntaskólinn við hamrahlíð lagningardagar 1998
147. 28. ágúst 1998  mh-norðurkjallari hinir árlegu maus mh tónleikar 1998
165. 3. september 1999  mh norðurkjallari hinir árlegu maus í mh tónleikar 1999
211. 20. september 2002  norðurkjallari mh maus í norðurkjallara
238. 3. október 2003  norðurkjallari mh maus í norðurkjallara

  
29. september 2003.
textar af musick og myndbandið við life in a fishbowl inn á maus.is
það hafa ansi margir sent okkur póst og beðið um að fá textana við lögin á "musick" inn á vefinn okkar. margir hafa sjálfsagt eignast lögin okkar ólöglega og hafa því ekki textabókina við hlið sér til að syngja með og tralla. við höfum ákveðið að skella inn textunum en þá verða menn líka að DRULLAST TIL AÐ KAUPA DISKINN OKKAR í staðinn. sumir vilja meina að diskurinn hljómi miklu betur ef hann er fenginn "heiðarlega" heldur en "óheiðarlega".
síðan hafa margir beðið um að fá myndbandið við lagið "life in a fishbowl" aðgengilegt hér á maus.is og þar sem við erum geþekk hljómsveit verðum við einnig við þessum óskum. þess má geta að það voru þeir börkur sigþórsson og björn thors sem eiga heiðurinn af þessu myndbandi.
skoða myndbandið (MPEG, 49.161 KB)

 

eldri fréttir af maus.is