| |

|
 |
 |
|
hér að
neðan eru svör við þeim fyrirspurnum sem okkur barst í desember
1999.
þeim er raðað í öfuga tímaröð, þannig að nýjustu
spurningarnar koma fyrst.
|
pétur
spurði 30. desember 1999 : ,,allt
í lagi, síðustu tvær plötur, frábærar plötur! en afhverju aðeins
20 lög fyrst þið hafið (nú til dags) þennan hæfileika að
gera þau öll góð?"
og við svöruðum : ,,...ég vil byrja
á því að taka fram að við erum mjög ánægðir með allt sem
við höfum gert en ekki aðeins síðustu tvær plötur. en
af hverju aðeins tuttugu lög á fjórum árum? það eru
margar góðar og gildar ástæður fyrir því. hér eru þær
helstu sem mig dettur í hug (í engri sérstakri röð):
1. þegar maður gefur út plötu fer mikill tími í að fylgja
henni eftir eins og að spila á tónleikum út um allt land. á því
tímabili er lítið um æfingar hjá hljómsveitinni og því lítið
um lagasmíðar í gangi.
2. við búum nú einu sinni á íslandi og því ekki möguleiki
fyrir okkur að geta fengið sómasamleg laun fyrir að vera í
rokkhljómsveit. því þurfum við að vinna fulla vinnu
einhversstaðar út í bæ og láta hljómsveitina vera aukavinnuna.
því eru menn gjarnan orðnir þreyttir á kvöldin þegar kemur að
því að semja lög.
3. okkur finnst nauðsynlegt að hvíla hljómsveitina á markaðnum
hér á landi enda ekki stór markaður á ferðinni. við
viljum frekar koma ferskir inn þegar við gefum út plötu og reyna
að koma á óvart.
4. 10 lög er nokkuð hæfilegur lagafjöldi á plötu að okkar
mati. hver kannast ekki við það að eiga plötu sem á sína
spretti en er allt of löng og alls ekki nógu heilsteypt.
a.m.k. gerum við það og því viljum við gefa út hæfilega
langar plötur sem liggja því mun betur við hlustun.
5. við gefum ekki út lög nema að vera allir 100% ánægðir með
útkomuna. þetta dregur sjálfsagt mjög úr framleiðslu
laganna en að sama skapi gerir þau betri enda þvílíkt gæðaeftirlit
á ferðinni.
6. ef þú lítur til þekktra hljómsveita út í heimi þá eru
yfirleitt tvö til þrjú ár á milli platna hjá þeim og stundum
meira og því ekkert óeðlilegt við okkur!
...ég vona að við höfum náð að svara spurningu þinni
:)"
"usamah
bin muhamad bin laden" spurði 29. desember 1999 : ,,hvað
er allt bateríið stórt hjá ykkur með umboðsmanni ykkur og eru
einhverjir fleiri eru þið ekki með rótara?"
og við svöruðum : ,,...við erum
ekki með neinn umboðsmann því við sjáum um öll slík mál sjálfir.
rótara tökum við með okkur þegar við förum út á land svona
til að hjálpa okkur með ýmislegt. batteríið er því
ekkert voðalega fjölmennt hjá okkur undir venjulegum kringumstæðum.
stundum hleður það þó á sig fólki þegar eitthvað ákveðið
er í gangi, eins og t.d. á útgáfutónleikunum okkar síðustu þegar
vel yfir 20 manns komu að vinnu við þá með einum eða öðrum hætti."
sóley
spurði 28. desember 1999 : ,,heirru....ætliði
að spila á einhverjum árshátíðum árið 2000????"
og við svöruðum : ,,...við höfum
hvergi bókað okkur að svo stöddu en það má búast við að
maus spili á einhverjum árshátíðum á komandi ári. það
verður bara að koma í ljós síðar hvar og hvenær það verður."
orri
spurði 26. desember 1999 : ,,ég
var hérna að velta því fyrir mér hvort riðgaði geimgingillinn
og maðurinn með járnröddina væri eini og sami maðurinn. sem
sagt maðurinn með járn röddina gerist á undan riðgaður
geimgengill. (svona eins og star wars ævintýrið þar sem byrjunin
var ekki gefin út fyrst). fyrst þá syngur hann um hve mikils virði
röddinn hans er í laginu um manninn um járnröddina, en svo í riðgaður
geimgengill er hann allur orðinn riðgaður og þar með talinn röddin
og hann er allur niður brotin og líður eins og honum sé hafnað
af öllum.....annars á ég mjög erfitt með að fatta textan um riðgaða
geimgengilinn og getur velverið að ég hafi ekki túlkað hann rétt..........til
gamans geta þá datt mér í hug radiohead lagið "my iron
lung" (sem hefur mjög torfattanlegan texta) þegar ég heyrði
fyrst titilinn "maðurinn með járn röddina"?"
og við svöruðum : ,,...nei, það er
ekkert samhengi með texta þessara laga. í manninum með járnröddina
syngur biggi um sjálfan sig, en í ryðguðum geimgengil er hann að
syngja um hvernig tískuafbrigði geta mismunað fólk i!!
..og hana nú ! :) "
hædý
(dídí á mánud.) spurði 24. desember 1999 : ,,af
hverju í bbbbbbbbbíííííííbbbbbbbbb er verið að halda
sitjandi tónleika með ykkur og fleiri svona böndum t.d. ensími
og botnleðja já það er svo kósí að sitja í myrkri og hlusta
á góða tónlist, halló !!!!!!!! hvað er verið að pæla maður
á að hoppa dansa láta eins og fífl, hreyfa sig eki sitja eins og
klessa hvað er fólk að pæla ????????"
og við svöruðum : ,, ...ég veit
ekki hvað skal segja. við spilum bæði á tónleikum og böllum
þar sem fók fær að "hoppa og dansa og láta eins og fífl"
og líka á tónleikum þar sem fólk "situr eins og
klessa" og horfir á okkur spila. ég sé að þér
finnst skemmtilegra að láta eins fífl og því verður þú að mæta
oftar á þannig tónleika. síðan er líka vandamál hér í
borginni að það eru engir góðir tónleikastaðir og eru því
haldnir tónleikar í sölum eins og t.d. bíóborginni. sá
salur gefur síðan barasta ekki færi á mikilli slammstemmningu.
bara sorrý!!!"
margrét
spurði 23. desember 1999 : ,,hvernig
stendur á því að flest en þó ekki böll með ykkur eru svolítið
illa auglýst? eða spilið þið kannski ekki oft? maður heyrir
svo lítið af því. hvar voruð þið um síðustu
verslunarmannahelgi? ég mæli með þjóðhátíð í eyjum á þeirri
næstu, það yrði geðveikt. annars bara takk fyrir að vera besta
hljómsveit á Íslandi... :)"
og við svöruðum : ,,...ég veit ekki
hvað ég á að segja um auglýsingarnar, nema að þær eru
sjaldnast í okkar höndum. þú getur lesið
allar tónleikaumfjallir okkar frá upphafi maus hér á maus.is
og séð hvar við vorum hverju sinni. verslunarmannhelgin er
ekki eitthvað sem við lifum fyrir og erum við því oftast bara
útaf fyrir okkur og höfum t.d. aldrei spilað á þjóðhátíð.
það er þó aldrei að vita nema við kíkjum einhvern daginn, en
að lokum: takk fyrir að finnast við besta hljómsveit á íslandi
!!"
haukur
spurði
22. desember 1999 : ,,áður en ég skelli spurningu minni
framan í ykkur... verð ég bara að játa það að þetta er
einhver sú flottasta heimasíða sem ég hef séð! punktur. eða
reyndar upphrópunarmerki... og trúið mér, ég ætti að hafa
eitthvert vit á þessu eftir að hafa gert lítið annað sl. 2 ár
en að spila á gítar og hanga á netinu...ójá, eitt enn áður
en ég kem að spurningunni... á textasíðunni... stendur:
"leit af orðum..." bara svona uppá djókið, en það er
réttara að segja "leit aÐ orðum...", heh... minnir mig
á villu á 2. plötu sigur rósar (vonbrigði) þar sem stóð
"leit af lífi" þó svo að upprunalega héti lagið
"leit að lífi" þ.e.a.s. á von-plötunni. jeij, loksins
kemur spurningin: þar sem ég er rosalegur radiohead aðdáandi lá
mér bara forvitni á því að vita, fílar enginn af ykkur
radiohead? á síðunum um ykkur nefniði helling af tónlistarguttum,
en hvergi radiohead. komm onn. einhver af ykkur hlýtur að sjá
snilli radiohead. eða hvað? ..."
og við svöruðum : ,,...takk fyrir hólið
haukur. við reynum að gera okkar besta, hvort sem það er
í lagasmíðum eða vefsíðugerð! takk líka fyrir ábendinguna
um "stafzetttnyngarvilunna", hún hefur þegar verið löguð!
...gerum greinilega ekki okkar besta þar á bæ, en maður verður
nú að fá að skíta á sig í einhverju!!!! ...í
sambandi við raidiohead þá fílum við allir þá ágætu hljómsveit
mjög mikið. það kemur mér meira að segja mjög á óvart
að enginn af okkur skuli nefna þá, og ekkert nema fljótfærni þar
á ferðinni. þetta er nefnilega enginn endarlegur listi hjá
okkur, heldur kannski meira svona brot af uppáhalds hljómsveitum
og tónlistarmönnum. fyrst fílaði reyndar danni ekki
raidiohead, því hann þoldi ekki "the bends" plötuna og
reyndum við allt sem við gátum að reyna að koma honum í
skilning um að raidiohead væri frábær hljómsveit. það tókst
ekki fyrr en "ok computer" kom út því hann fílar hana
mjög vel, enda frábær plata á ferðinni. það var eitthvað
við "soundið" á "the bends" sem pirraði
hann. ég (eggert) var hins vegar að hlusta á báðar þessar
plötur núna nýlega og ég verð bara að segja að mér finnst
"the bends" endast mun betur, þó svo hér sé um tvær
mjög ólíkar og mjög svo frábærar plötur að ræða.
fyrstu plötuna "pablo honey" hef ég persónulega ekki
enn gripið, þó svo að "creep" sé algjör klassík !"
gazzi
spurði 16. desember 1999 : ,,eruð þið að gera e-ð stórt
á næstunni ? hvað geriði um aldaárþúsundamótin ? haldiði að
þið komið e-ð austur aftur, (þ.e.a.s. ef stemmingin væri aðeins
betri en síðast) ? samt meiriháttar tónleikar. váá, djöfull
get ég kjaftað ! auf wiedermausen..."
og við svöruðum : ,,...eitthvað stórt?
nei, það er ekki mikið meira á dagskrá okkar það sem eftir
lifir af öldinni. ætli við verðum ekki í faðmi fjölskyldunnar
um árþúsundskiptin og jú, við munum örugglega koma aftur
austur. bara vonandi fljótlega á næstu öld."
félagsmiðstöðin
vitinn, hafnafirði spurði 16. desember 1999 : ,,verður mögulegt
að fá jólalagið ykkar í ár ,,ég hlakka svo til" á mp3
formatti, jafnvel hérna á síðunni?"
og við svöruðum : ,,...nei, því miður,
við eigum nefnilega enga upptöku af því sjálfir. ég ætla
samt að tékka á því hvort x-ið geti kannski gefið okkur upptöku
og þá mundu við glaðir gefa lagið hér á maus.is!"
"massi" spurði 15. desember 1999 : ,,hjálpaði
"rassi" eitthvað til með nýja vefinn? "
og við svöruðum : ,,..."rassi"
fékk að kommenta fullt á vinnslustiginu og það er alltaf ágætis
hjálp. "hjassi" kom hins vegar hvergi nærri !!"
pétur spurði 15. desember 1999 : ,,breyttist
"allt sem þú lest er lygi" eitthvað frá því að það
varð vinsælt og þar til það var gefið út á nýja disknum?
t.d. söngurinn eða textinn. "
og við svöruðum : ,,...já, við tókum
lagið upp aftur og því hefur söngurinn breyst. textinn er sá
sami en það leynast kannski eitt og eitt orð sem eru ekki alveg nákvæmnlega
eins. lagið er líka pínulítið hægara á nýju plötunni
heldur en á kvistum og "liggur" miklu betur. svo er
hljómurinn líka töluvert betri núna."
þorbjörn spurði 14. desember 1999 : ,,ég
var að skoða síðuna ykkar og ég leitaði í tónleikaumjöllun
hjá ykkur og skrifaði "Ísafjörður" og þá koma aðeins
tvennir tónleikar/böll þar fram en fyrir utan frystihúsarokk og
skrallið 1999 hafið þið komið ísafjarðarbíó með stjörnukisa"
og við svöruðum : ,,...ástæðan
fyrir því að það komu aðeins tvær niðurstöður er sú að
í hinum umfjöllunum kemur greinilega ekki fram orðið "ísafjörður".
í staðinn kemur fram "ísafirði" eða "ísafjarðarbíó".
prófaðu þá bara að leita af: "ísa". maus hafa
nefnilega 4 sinnum spilað á ísafirði, eða nágreni: í
menntaskólanum, í bíóinu,
í frystihúsinu og á skrallinu
í bolungarvík. aldrei efast um að maus gleymi einhverjum tónleikum,
hvað þá á ísafirði!!"
gazzi spurði 14. desember 1999 : ,,djöfulli
góð síða, þá á ég við nýju uppsetninguna ! mjög gott hjá
ykkur að bjóða eins heitum maus-aðdáanda og ég er að geta sótt
mp3 fæla af óútgefinni tónlist. ég spyr, eigiði meira svona sætt
og óútgefið ? og að auki, nýja platan ykkar fellur vel að mínu
eyra.... hreint fiturokk !!! funakveðja, gazzi, heitasti mausari
fyrir austan fjall."
og við svöruðum : ,,...hey, takk
fyrir þetta gazzi. þú ert ekki sem verstur sjálfur! en jú,
við eigum fullt af mp3 mauslögum
í pokahorninu og aldrei að vita nema við setjum þau út á netið
við tækifæri"
"nonni" spurði 14. desember 1999 :
,,hvaða nonnabiti finnst ykkur bestur? eruði til í að
koma á plaggat og auglýsa nonnabita? ég fíla lagið ykkar
"stick em up" alveg í botn! "
og við svöruðum : ,,...rækjunonni
hefur vinninginn og nei, því erum samningsbundnir
"settu-loku" á ísafirði. að lokum verðum við að
taka fram við þig, elsku "nonni", að þú ert að rugla
okkur við aðra miklu frægari hljómsveit. það voru nefnilega beasty
boys sem gáfu út prómóplötuna "stick'em
up" árið 1993 á mca records."
binni spurði 14. desember 1999: ,,ætliði
að taka nýju útgáfuna af k-nótt á morgun? "
og við svöruðum : ,,...já ég býst
svo sannarlega við því. "
trustus jones spurði 13. desember 1999: ,,hvernig
er það með metnað....getur hann stökkbreyst í hroka?"
og við svöruðum : ,,...já það er
góð spurning, sérstaklega ef þú eykur hraðann aðeins um of!"
tinni spurði 13. desember 1999: ,,ég
var bara að spá sko.......biggi er með smásögurnar sínar sem
er frábært....en fáum við ekki að lesa ferskeytlurnar hans
eggerts??það væri frábært sko.......æ nó jú ken dú itt egg!"
og eggert svaraði : ,,...ferskeytlurnar
mínar verða að bíða betri tíma. þeir verða leynivopnið ef
illa fer í bransanum."
arnar spurði 11. desember 1999: ,,hver
er þessi maus eiginlega?"
og við svöruðum : ,,...maus, hann er
þéttur!"
tinni spurði 11. desember 1999: ,,eggert....hvað
varð um lubbann þinn?"
og eggert svaraði : ,,..."hann er
farinn kemur aldrei aftur", svo að maður vitni nú í ógleymanlegt
mússíktilraunaband !"
gyða spurði 11. desember 1999 : ,,hvað
heitir nýfædda dóttir hans danna? "
og við svöruðum : ,,...hún heitir iðunn."
hannes spurði 11. desember 1999 : ,,hvernig
get ég nálgast lagið "skjár" með maus? "
og við svöruðum : ,,..."skjár"
var fyrsta lagið sem maus gaf út. það kom út á safndisk sem
smekkleysa gaf út í tilefni 50 ára afmæli lýðveldis íslendinga.
platan kom út á afmælisdaginn 17. júní 1994. þetta ansi
merkileg plata og nauðsynlegur gripur fyrir rokksögu íslendinga.
þarna eru hljómsveitir á borð við victory rose (nú sigur rós),
björk (á íslensku), unun, tjalds gizzur, yucatan og margar
fleiri. við sjáum svolítið eftir að hafa ekki gefið út lagið
á okkar fyrstu breiðskífu, "allar kenningar heimsins...
...og ögn meira", sem kom út haustið eftir. við vorum bara
ungir og vitlausir og vorum á þeirr skoðun að það ætti bara að
gefa hvert lag út einu sinni. en við getum glatt þig með því að
það er hægt að fá "skjá"
sem mp3 lag hér á maus.is"
|
|
|