loksins er komin sérstök maus framhlið fyrir winamp spilarann þinn. ef þú hefur ekki grænan grun um hvað winamp spilari er þá get ég sagt þér að hann spilar m.a. svokölluð mp3 lög sem allir netverjar ættu að vera farnir að þekkja af góðri raun.
 
ef þú átt ekki svona spilara er best fyrir þig að sækja einn slíkan spilara nú þegar og láta ekki nokkurn mann vita að þú hafir ekki átt svona áður.
 
þegar þú hefur eignast svona spilara þá nærðu í maus.zip skránna hér til hliðar og vistar hana í "skins" möppuna í skráarsafninu þar sem spilarinn er geymdur. að lokum breytir þú um "skin" á spilanum og allir vegir eru þér færir með maus framhlið og að sjálfsögðu mauslag í botni!

 
maus.zip (41,0 KB)