hér að neðan er hægt að ná í demóútgáfur af óútgefnum mauslögum.
demóútgáfa þýðir "tekiðuppárosastuttumtímaogþvíekkinæstumþvíeinsgottogþaðgætiverið".
óútgefið lag þýðir "passaðiekkiáplötunaogþvíkannskiekkialvegnógugottlagaðokkarmatiþá".
 
þetta er ekki byrjun, bara nýr endir (2,9MB) - maí 1999
þetta lag fékk að fjúka af "í þessi sekúndubrot..." á síðustu stundu. við höfðum tekið það nokkrum sinnum á tónleikum, en okkur fannst það einfaldlega ekki gera plötuna neitt betri. samt helvíti gott lag.
 
rokkar feitt (848KB) - maí 1999
þetta lag eða öllur heldur vísir að lagi, er af demóum okkar fyrir ,,í þessi sekúndubrot...". þetta kom bara upp úr einhverju djammi á milli laga í stúdíóinu og við ákváðum að taka það upp til gamans. það er mjög fyndið að heyra hvað við erum að segja í lok lagsins, því það lýsir mjög stemmningunni sem oft er á æfingum.
 
bláskjár (4,0MB) - mars 1997
við vorum sífellt í vandræðum með að klára þetta lag á sínum tíma því okkur fannst eitthvað vanta. við sömdum lagið "strengir" miklu síðar upp úr laginu.
 
snjókóngur (3,7MB) - mars 1997
þetta lag var samið stuttu eftir "ghostsongs" og hefði aldrei passað inn á "lof mér að falla...". hefði samt vel átt heima á ghostsongs.