...maus, að gera eitthvað sem krefst einbeitingu og tekur langan tíma. svoldið bara eins og við erum.
...við stofnuðum hljómsveitina í apríl 1993. það lá einhvern veginn bara í loftinu að það ætti að fæðast hljómsveit á þessum tíma. ég og eggert vorum búnir að vera með hljómsveitina í maganum mjög lengi og löngu komnir yfir venjulegan meðgöngutíma. getnaður hafði átt sér stað í svefnherbergi eggerts á laugardagseftirmiðdegi með undurfallegum hljóðfæraatlotum sem svo síðar urðu grunnar af nokkrum af fyrstu börnum sem hljómsveitin átti. ef ég man rétt voru þessi börn þó flest borin út en eitt fékk þó að blómstra en það barn hlaut nafnið "ljósrof". og hefur það barn yfirgefið foreldrahús og hafið sljálfstætt líf. danni var hluti af árbæjarmafíunni og tókst okkur að neyða hann inn í hljómsveitina stuttu eftir að palli var ættleiddur inn í fjölskylduna...
...í mars 1994 vann hljómsveitin músíktilraunir, eftir blóð svita og tár. og í framhaldinu á því var kominn tími til að sleppa einu barninu okkar út í hinn stóra grimma heim hrokafullra eyrna. þetta barn var skýrt "skjár" í höfuðið á rafmagnshúshaldinu góða. lagið fékk að vera "memm" á plötunni "smekkleysa í hálfa öld" sem kom út 17.júní, en það má til gamans geta að þá var einmitt 50 ára afmæli lýðveldissins. laginu vegnaði ágætlega í landi undirtónaleysis og almennar ládeyðu, og vingaðist það svolítið við nokkra útvarpsmenn á þá splúnkunýrri útvarpsstöð, x-ið 977... |